Kynna nám í sjávarfræðum

Deila:

Fagstjórar meistaranáms í sjávarbyggðafræði og haf- strandsvæðastjórnun, Dr. Matthias Kokorsch og Dr. Verónica Méndez Aragón, segja frá námsleiðunum tveimur, uppbyggingu þeirra, áherslum og atvinnumöguleikum í Háskólasetrinu á Ísafirði á föstudag. Fagstjórarnir og núverandi nemendur svara spurningum þátttakenda að kynningunni lokinni. Kynningin fer fram á ensku.

Sjávarbyggðafræði er eina sérhæfða byggðafræðinámið á Íslandi. Námið er þverfræðilegt meistaranám þar sem fengist er við þróun byggða í fortíð og framtíð. Námið byggir einkum á félagsfræði, hagfræði, mannvistarlandfræði og skipulagsfræði.

Haf- og strandsvæðastjórnun er þverfræðilegt meistaranám á sviði umhverfis- og auðlindastjórnunar með áherslu á hafið og ströndina. Í náminu kynnast nemendur ýmsum aðferðum við stjórnun haf- og strandsvæða út frá efnahagslegum, félagslegum og umhverfislegum forsendum.

Námsleiðirnar eru kenndar á Ísafirði í samstarfi við Háskólann á Akureyri og útskrifast nemendur með gráðu frá HA.

Nemenda- og kennarahópurinn er mjög fjölbreyttur en bæði kennarar og nemendur koma víða að úr heiminum og hafa margvíslegan bakgrunn.

Inntökuskilyrði í báðar námsleiðir eru þau að umsækjandi hafi lokið grunnháskólagráðu BA, BSc eða BEd, óháð námsgrein.

Kynningin verður klukkan 15.00 til 17.00

Deila: