Stærsti loðnutúr sögunnar – rúmlega 3.400 tonn

Deila:

Börkur NK kom til Seyðisfjarðar í gær með fullfermi af loðnu. Þegar var hafist handa við að landa úr skipinu og þegar löndun lauk 18 tímum síðar kom í ljós að aflinn var 3.409.308 kg. eða rúmlega 3.400 tonn. Þar með var ljóst að hér var um mettúr að ræða og líklega hefur loðnuskip aldrei fært jafn mikinn afla að landi. Hjörvar Hjálmarsson skipstjóri var eðlilega ánægður með túrinn.

„Þessi afli fékkst í átta holum á fjórum dögum. Það er ekki hægt að kvarta yfir slíkum aflabrögðum. Það eru einungis þrjú skip í íslenska flotanum sem geta komið með álíka afla að landi. Það er systurskipið Vilhelm Þorsteinsson EA og Beitir NK, en lestarrými Beitis er þó heldur minna en hinna tveggja. Mér vitanlega er einungis eitt skip sem getur slegið þetta met og er það hin danska Ruth. Ruth er spánný og smíðuð í Karstensens skipasmíðastöðinni eins og Börkur og Vilhelm og er með örlítið meiri burðargetu,“ segir Hjörvar í samtali á heimasíðu Síldarvinnslunnar.

Eggert Ólafur Einarsson, verksmiðjustjóri á Seyðisfirði, segir að hráefnið úr þessum mettúr sé afar gott. „Þetta er gæðahráefni og vinnslan hjá okkur gengur afar vel. Nú er líka góð veiði og nóg hráefni og við erum að undirbúa löndun úr Barða NK,“ segir Eggert.

Slegið var á þráðinn um borð í Börk í morgun og til svara var Hálfdan Hálfdanarson, sem sestur var í skipstjórastólinn í stað Hjörvars. „Við fórum frá Seyðisfirði klukkan hálf sjö í morgun og erum nú út af Héraðsflóanum á leið á miðin norðaustur af Langanesi. Það er búin að vera bræla síðan seinni partinn í gær en hún er að ganga niður núna. Hér um borð eru allir hressir enda menn að upplifa alvöru loðnuvertíð,“ segir Hálfdan.
Börkur NK kemur með metfarminn til Seyðisfjarðar í gær. Ljósm. Ómar Bogason

Deila: