Myndbandasamkeppni fyrir ungt fólk

Deila:

Norræna verkefnið NordMar Biorefine hefur sett af stað myndbandasamkeppni fyrir ungmenni á aldrinum 14-19 ára. Keppnin er opin öllum á þessum aldri á Norðurlöndunum, þar með talið á Íslandi.

NordMar Biorefine verkefnið, eða Norræn lífmassaver eins og það gæti útlagst á íslensku, gengur út á það að kanna möguleikana sem felast í fullnýtingu þeirra sjávarauðlinda sem nýttar eru á Norðurlöndunum.

Markmiðið með myndbandakeppninni er að höfða til frumkvöðlahugsunar unga fólksins en með myndböndunum gefst því kostur á að setja fram sínar hugmyndir um hvernig nýta megi auðlindir hafs og vatns á nýjan eða betrumbættan hátt. Sérstök áhersla er lögð á þær auðlindir sem eru van- eða ónýttar. Myndböndin mega vera hvernig sem er, þ.e. leikin, heimildamyndir, teiknimyndir o.s.frv. Vegleg verðlaun eru í boði fyrir besta myndbandið!

Deila: