Þessi merki höfðingi á skilið að hans sé minnst

Deila:

,,Hugmyndin vaknaði á bryggjurúntinum. Ásbjörn RE var að koma til hafnar og þótt ég hefði séð hann margoft áður í höfn eða að koma eða fara þá atvikaðist það þannig að ég fór um borð og gaf mig á tal við skipverjana. Ég var á sínum tíma á togaranum Bergvík frá Keflavík, sem var mjög svipaður Ásbirni en þó heldur styttri. Mér leið eins og að tíminn hefði staðið í stað og ég væri aftur orðinn 17 eða 18 ára. Mér kom þá í hug að það væri ekki svo vitlaust að gera heimildarmynd um þennan merka höfðingja.“

Þetta segir Björgvin Helgi Möller Pálsson, kvikmyndagerðarmaður í samtali á heimasíðu HB Granda, en hann hefur varið sl. ári í gerð myndar um ísfisktogarann Ásbjörn sem senn hverfur úr rekstri hjá HB Granda. Verður myndin frumsýnd í Hörpu um Sjómannadagshelgina og er því liður í dagskránni á Hátíð hafsins í Reykjavík. Myndin verður sýnd í Kaldalóni í Hörpu kl. 14, 15 og 16 á laugardag og á sunnudeginum verða sýningarnar fjórar talsins, kl. 12, 13, 14 og 15. Aðgangur er ókeypis.

Að sögn Björgvins Helga hefur hann alltaf haft brennandi áhuga á öllu sem tengist sjávarútvegi og þá ekki síst gömlum skipum. Áhuginn er ekki hvað minnstur á togurunum sem smíðaðir voru í Flekkufirði í Noregi fyrir íslenskar útgerðir en Ásbjörn var meðal þeirra.

,,Ætli það megi ekki rekja þennan áhuga allt aftur til þess tíma að ég var smástrákur. Pabbi var kaupfélagsstjóri á Þingeyri og fór til Noregs til að ganga frá kaupum á togaranum Framnesi ÍS. Ég man að maður hafði ekki séð annað eins glæsifley þegar Framnesið kom fyrst til Þingeyrar. Framnesið var einn af fyrstu norsku togurunum sem hingað komu en Bergvík, sem áður hét Júlíus Geirmundsson ÍS, var sá fyrsti. Í mínum huga hefur Ásbjörn alltaf verið aðaltöffarinn í því sem nefna má miðbæjarklíkuna í Reykjavík. Ásbjörn hefur jafnan fiskað jafn mikið eða meira en miklu stærri skip og það felst ekki síst í því að í áhöfninni eru úrvalsmenn og óvenjulega samhentur mannskapur.“

Góð samvinna við HB Granda

Björgvin Helgi segir að Leifur skipstjóri og strákarnir í áhöfninni hafi tekið sér vel og verið boðnir og búnir til að ræða málin.

,,Ég viðraði hugmyndina um kvikmyndina fyrst við þá og þeim þótti hún vel til fundin. Í framhaldinu ræddi ég svo málin við Vilhjálm forstjóra og Kristínu Helgu, aðstoðarmann hans, og þeim leist báðum vel á. Allir hjá HB Granda hafa reyndar tekið mér vel og greitt götu mína hvað varðar þetta verkefni.“
Björgvin Helgi fór í veiðiferð með Ásbirni í lok september sl. og myndaði allt sem fyrir augu bar.

,,Við fengum allt frá mjög góðu veðri og upp í haugabrælu en haustbrælurnar voru að byrja að gera varar við sig á þessum tíma. Síðar tók ég viðtöl við skipverja og sl. vetur sat ég svo við úrvinnslu og lokafrágang á myndinni,“ segir Björgvin Helgi.
Sjómennska og kvikmyndagerð

Þótt Björgvin Helgi hafi ekki gert sjómennskuna að ævistarfi þá hefur hann mikið verið til sjós, fyrst sem háseti og síðar kokkur. Hann byrjaði á Bergvíkinni, sem Kristinn Gestsson, nú skipstjóri á Þerney ER, var þá með.

,,Síðan var ég á togaranum Aðalvík KE og mér er það minnisstætt þegar við vorum að koma heim eftir mettúr að við fréttum þá að skipið hefði verið selt svo að segja með manni og mús til ÚA á Akureyri. Þar fékk það nafnið Sólbakur. Svo var ég aftur með Didda (Kristni Gestssyni) á Snorra Sturlusyni RE,“ segir Björgvin Helgi en um kvikyndagerðarferilinn hefur hann þetta að segja.

,,Ég hef lengi verið með ástríðu fyrir kvikmyndum og ég hef verið svo lánsamur að hafa getað helgað mig kvikmyndagerðinni alfarið síðustu fjögur árin. Ég hef mikið gert að kynningarmyndum um íslenskan sjávarútveg og einnig kennsluefni. Þá var ég kvikmyndatökumaður í myndinni Höggið sem fjallar um það þegar flutningaskipið Suðurlandið fórst á jólanótt 1986. Loks má nefna að ég hef gert tvær heimildamyndir, ,,Fólkið í Dalnum,“ sem fjalla um Secret Solstice tónlistarhátíðina sem haldin er í Laugardalnum í Reykjavík ár hvert, en síðari myndin, sem fjallar um hátíðina í fyrrasumar, verður sýnd nú í júnímánuði,“ segir Björgvin Helgi Möller Pálsson.

Deila: