Síldarvinnslan væntir meiri hagnaðar

Deila:

Síldarvinnslan hf. sendi frá sér jákvæða afkomuviðvörun þann 30. desember síðastliðinn og uppfærði fyrri afkomuspá félagsins. Fram kemur í tilkynningu Gunnþórs Ingvasonar, forstjóra, að í áætlunum félagsins sem lagðar hafi verið fram á fyrri hluta ársins 2022 hafi verið gert ráð fyrir að EBITDA samstæðu Síldarvinnslunnar hf yrði á bilinu 86 – 96 milljónir USD á árinu. Félagið hefur nú uppfært EBITDA spá sína í 96 -105 milljónir USD.

„Útgerð og vinnsla hefur almennt gengið vel á árinu en á síðustu mánuðum hafa komið inn óvæntir jákvæðir þættir í reksturinn sem skýra betri afkomu. Má þar nefna að verð á fiskimjöli og lýsi eru betri en áætlanir gerðu ráð fyrir, auk þess sem afli var ívið meiri. Þá var kolmunni veiddur inn á næsta ár eins og heimildir leyfðu en það helgast af mjög sterkum kolmunnakvóta á næsta ári. Einnig var farið til loðnuveiða í desember sem var ekki gert ráð fyrir í áætlunum félagsins. Þessu til viðbótar liggur fyrir að Vísir hf. verður hluti af samstæðuuppgjöri Síldarvinnslunnar hf. frá 1. desember sl. Sveiflur geta verið miklar í sjávarútvegi og ekki einhlítt að ná utan um allar breytur í áætlanagerð.
Vinna við ársuppgjör er að hefjast og því geta lykiltölur enn tekið einhverjum breytingum á uppgjörstímabilinu. Fyrirtækið mun birta niðurstöðu ársins þann 9. mars næstkomandi í samræmi við fjárhagsdagatal,“ segir í tilkynningu Síldarvinnslunnar hf.

Deila: