Þriðja hvert útkall á sjó

Deila:

Flugdeild Landhelgisgæslunnar sinnti 299 útköllum árið 2022 og hafa þau aldrei verið fleiri, að því er segir í samantekt hennar.  Af útköllunum 299 voru 156 þeirra vegna sjúkraflutninga og 115 vegna leitar eða björgunar. Um þriðjungur útkallanna voru farin á sjó sem er aukning frá árinu 2021.

Þá fjölgaði sjúkraflutningum á árinu en meðal annars var nokkuð um útköll til Vestmannaeyja og á sunnanverða Vestfirði sem hefðbundið sjúkraflug gat ekki annast sökum veðurs eða slæms skyggnis. Af útköllunum 299 voru 136 þeirra á hæsta forgangi. Fyrra met var sett árið 2018 en þá annaðist Landhelgisgæslan 278 útköll með loftförum stofnunarinnar.

Deila: