Tvíhliða fundir forsætisráðherra í tengslum við Hringborð norðurslóða

Deila:

Bjarni Benediktsson forsætisráðherra átti nokkra tvíhliða fundi í tengslum við ráðstefnuna Hringborð norðurslóða. Hann átti fund með Lisu Murkowski öldungardeildarþingmanni frá Alaska þar sem málefni norðurslóða, orku og loftslagsmál bar hæst.

Forsætisráðherra átti fund með Hans heilagleika Bartólemeus I, samkirkjulega patríarkanum í Konstantínóbel þar sem rædd voru umhverfis- og loftslagsmál og skýrði Hans heilagleiki meðal annars út hlutverk kirkju sinnar. Þá átti forsætisráðherra fund með Henry Puna, forsætisráðherra Cook-eyja þar sem helst bara á góma sjávarútvegmál og fiskveiðistjórnunarkerfið íslenska, ferðamannaiðnaðurinn og loftslagsbreytingar – auk þess sem báðir lýstu ánægju með nýstofnað stjórnmálasamband eyjanna.
Á myndinni er Bjarni Benediktsson, forsætisráðherra, ásamt Lisu Murkowski, öldungardeildarþingmanni Alaska

Deila: