Millilöndun á ýsu og ufsa

Deila:

Frystitogarinn Blængur NK kom til Neskaupstaðar í nótt til millilöndunar, að því er frá greinir á vef Síldarvinnslunnar.

Þar segir að skipið sé í 40 daga túr en hafi komið inn til millilöndunar eftir 13 daga á veiðum. Aflinn hingað til í túrnum er 372 tonn upp úr sjó og er uppistaða aflans ýsa og ufsi.

Rætt er í fréttinni við við Bjarna Ólaf Hjálmarsson skipstjóra og hann spurður hvort menn væru ekki sáttir við aflabrögð. „Jú, þau hafa verið býsna góð og það hefur verið nóg að gera það sem af er túrnum. Við komum inn til að landa tæplega 11.000 kössum og verðmæti aflans er 121 milljón. Við höfum verið að veiðum hérna fyrir austan og veðrið hefur verið gott að undanskildum síðustu dögunum. Það hefur oft verið þokkalegasta ýsuveiði hér eystra á þessum árstíma en núna bætist ufsinn við og það er gleðiefni. Traffíkin á miðunum er ansi mikil og sóknin í ufsann er eðlilega mikil. Við munum halda á ný til veiða að lokinni löndun í kvöld og klára þennan langa túr en síðan er Barentshafstúr á dagskránni hjá Blængi og hann verður líka langur,“ segir Bjarni Ólafur.

Deila: