Auglýst eftir umsóknum um byggðakvóta
Fiskistofa auglýsir eftir umsóknum um byggðakvóta til fiskiskipa fyrir eftirtalin byggðarlög skv. Ákvæðum reglugerðar nr. 604/2017 um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2017/2018.
Auk reglugerðarinnar er vísað til sérstakra úthlutunarreglna í neðanskráðum byggðarlögum, sbr. auglýsingu nr. 406/2018 í Stjórnartíðindum:
Súðavíkurhreppur
Vopnafjarðarhreppur
Umsóknarfrestur fyrir neðangreind byggðarlög er til og með 11. maí 2018
Vakin skal athygli á því að umsóknin telst ekki gild nema samningur um vinnslu fylgi.