Jafnlaunakerfið tekið út

Deila:

Jafnlaunakerfi Síldarvinnslunnar var tekið út í desember, í sjött asinn. Á vef fyrirtækisins segir að jafnlaunakerfið eigi að tryggja að launamál fyrirtækisins séu samkvæmt ÍST 85:2012 jafnlaunastaðlinum. Samkvæmt honum sé skylt að sýna fram á að launum sé háttað í samræmi við lög um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna.

Fram kom að óútskýrður launamunur innan fyrirtækisins væri 0,82% konum í hag. Það var fyrirtækið Intenta ehf. sem framkvæmdi tölfræðilega greiningu á launum félagsmanna. Hákon Ernuson, starfsmannastjóri Síldarvinnslunnar er sáttur við niðurstöðu úttektarinnar.

„Samkvæmt starfsmanna- og jafnréttisstefnu Síldarvinnslunnar á launasetning eingöngu að byggja á málefnalegum forsendum og það er afar ánægjulegt að fá það staðfest með skýrum hætti að kynbundinn launamunur sé ekki til staðar. Það liggur semsagt fyrir enn einu sinni að jafnréttisstefnu Síldarvinnslunnar er framfylgt í reynd og það er gott að það liggi fyrir. Rétt er að taka fram að vegna launakerfis sjómanna eru þeir undanskildir í umræddri úttekt,“ segir Hákon.

Deila: