Vinnslustöðin kaupir uppsjávarskipið Garðar frá Noregi

Deila:

Stjórn Vinnslustöðvarinnar hefur samþykkt kaupa H-34-AV Gardar af norsku útgerðarfyrirtæki og bæta þar með við fjórða skipinu í uppsjávarflota sinn. Þar eru fyrir Huginn, Ísleifur og Kap.

Skipið fer nú i slipp í Danmörku til hefðbundinnar skoðunar vegna eigendaskipta. Að öllu óbreyttu kemur það til nýrrar heimahafnar í Vestmannaeyjum undir lok júnímánaðar og verður gert klárt til makrílveiða.

Skipstjóri verður Jón Atli Gunnarsson núverandi skipstjóri á Kap VE.

Garðar á sér sögu á Íslandi, annars vegar sem Margrét EA í eigu Samherja og hins vegar sem Beitir NK í eigu Síldarvinnslunnar. Skipið var selt til Færeyja en núverandi heimahöfn er Björgvin í Noregi.

Garðar er liðlega 70 metra langur og 13 metra breiður. Lestarpláss er 2.100 rúmmetrar.

Sindri Viðarsson, sviðsstjóri uppsjávarsviðs Vinnslustöðvarinnar, fór á dögunum ásamt fleirum fulltrúum fyrirtækisins til Skagen í Danmörku til að skoða Garðar þegar hann kom þangað til löndunar:

„Okkur leist strax afar vel á enda er þetta hörkuskip sem búið er að endurnýja margt í og gera mikið fyrir. Aðalvélin er til dæmis ný, afar hagkvæm í rekstri og togkraftur er mikill.

Það er búið að fara yfir kælikerfi og lestar, blökkin er ný og skipið lítur í alla staði vel út,“ segir Sindri í samtali á heimasíðu Vinnslustöðvarinnar.

Af skipamálum Vinnslustöðvarinnar er það líka að frétta að Sighvatur Bjarnason VE hefur verið seldur úr landi.

Deila: