Tillaga að rekstrarleyfi Stolt Sea
![](https://audlindin.is/wp-content/uploads/2022/05/Stolt-Sea-Farm-thessi-er-ad-komast-i-slaturstaerd-scaled.jpg)
Matvælastofnun hefur unnið tillögu að endurnýjun á rekstrarleyfi fyrir Stolt Sea Farm Holdings Iceland hf. vegna matfiskeldis að Vitabraut 7 í Reykjanesbæ. Um er að ræða endurnýjun á rekstrarleyfi án breytinga þar sem hámarkslífmassi miðast við 2.000 tonn af senegalflúru og gullinrafa.
Athugasemdir við tillöguna skulu vera skriflegar og sendar Matvælastofnun á mast@mast.is. Frestur til að skila inn athugasemdum er til 10. júní 2022