Þór dró flutningaskip til hafnar

Deila:

Varðskipið Þór kom með flutningaskipið EF AVA til Reykjavíkur um klukkan 9 í gærmorgun. Dráttarbátar Faxaflóahafna drógu skipið síðasta spölinn til hafnar.

Flutningaskipið varð vélarvana í kjölfar sprengingar í vélarúmi þess á öðrum tímanum í gær.
Varðskipið Þór var komið að skipinu um kvöldmatarleytið í gær og áhöfn Þórs skaut taug á milli skipanna og tók flutningaskipið í tog að því búnu.
Á meðfylgjandi myndbandi má sjá hvernig aðgerðir fóru fram um borð í varðskipinu. https://youtu.be/ZRu21K6fwgM

 

Deila: