Veðrið stytti túrinn

Deila:

Gullver NS kom til hafnar á Seyðisfirði aðfaranótt sunnudags að lokinni veiðiferð. Afli skipsins var 105 tonn, blandaður afli en mest var af þorski. Þetta kemur fram á vef Síldarvinnslunnar. Úr skipinu var síðan landað í gær.

Rætt er við Þórhall Jónsson skipstjóra sem segir að veðrið hafi sett strik í reikninginn. „Ákveðið var að stytta túrinn því það stefndi í vitlaust veður. Menn ættu vart að þurfa að hafa áhyggjur af brælum á þessum árstíma en svona er þetta bara. Túrinn var fimm sólarhringar og það var veitt á okkar hefðbundnu slóðum; Hvalbakshalli, Berufjarðarálnum og á Lónsbugtinni. Farið verður út á ný eftir hádegi í dag,” segir Þórhallur.

Deila: