Aflinn ríflega 100 þúsund tonn í maí
Afli íslenska flotans í maímánuði var 102 þúsund tonn. Það er 11% minni afli en í fyrra. Þetta kemur fram á vef Hagstofu Íslands.
Botnfiskafli var 38 þúsund tonn í maí, sem er 16% samdráttur. Mestur var samdrátturinn í ufsa en 17% samdráttur var í þorski. Minni aflaheimildir skýra þann samdrátt.
Fram kemur að 20% aflaaukning hafi orðið í ýsu.
Sjá nánar hér.