Rígvænn makríll

Deila:

,,Veiðin er í lagi en hún mætti þó alveg vera meiri. Við erum komnir með um 400 tonn í þremur holum og þetta er allt rígvænn makríll. Meðalvigtin hefur verið vel yfir 400 grömm eða þetta 420 til 460 grömm samkvæmt sýnum sem tekin hafa verið,“ segir Guðlaugur Jónsson, skipstjóri á Venusi NS í samtali við heimasíðu HB Granda.

Guðlaugur segist hafa komið um borð í byrjun ágúst eftir sumarleyfi og hann segir að síðan þá hafi hann landað tvisvar á Vopnafirði. Er rætt var við Guðlaug síðdegis í gær var Venus djúpt út af Austfjörðum eða um 80 sjómílur út af Glettingi.

,,Það eru allir komnir hingað austur og veiðin hefur verið í lagi. Það er þó allur gangur á þessu. Stundum lóðar á makrílinn og stundum ekki. Það er þó oftast eitthvað að hafa og þó maður vilji alltaf meira þá hefur veiðin verið í góðu lagi,“ segir Guðlaugur Jónsson.

Víkingur AK kom til Vopnafjarðar í fyrrinótt með tæplega 900 tonna makrílfarm og verður byrjað að vinna þann afla um leið og vinnslu úr síðustu löndun Venusar lýkur.

Deila: