Fiskidagurinn mikli á morgun

Deila:

Fjölskylduhátíðin Fiskidagurinn mikli er haldinn hátíðleg í Dalvíkurbyggð nú um helgina. Fiskverkendur og fleiri framtakssamir í byggðarlaginu bjóða, með hjálp góðra styrktaraðila, landsmönnum öllum upp á dýrindis fiskrétti, milli kl. 11:00 og 17:00 á laugardeginum.

Matseðilinn breytist ár frá ári þó ávallt sé boðið upp á ákveðna vinsæla rétti. Öllum réttum fylgja brauð og drykkir eins og hver getur í sig látið. Vináttukeðjan er hugljúf dagskrá á sviði við kirkjuna á föstudeginum þar er tónlist, skemmtun, vináttukeðjuræðan og risaknús í lokin til að leggja línurnar fyrir helgina.

Á föstudagskvöldinu bjóða íbúar byggðalagsins gestum og gangandi upp á fiskisúpu í heimahúsum og görðum. Afar vönduð og fjölbreytt skemmtidagskrá prýðir hátíðina ár hvert. Markmið hátíðarinnar er að fólk komi saman, hafi gaman og borði fisk.

Á laugardagskvöldinu býður Samherji til stórtónleika með stórskotaliði landsins í tónlistarflutningi og risaflugeldasýning á eftir.

http://www.fiskidagurinnmikli.is/is/heim

 

 

Deila: