Umframafli strandveiðibáta 36,5 tonn

Deila:

Á strandveiðum í júlí fóru alls 389 bátar fram yfir 650 kg hámarkið í slægðum afla sem landa má í einni veiðiferð. Alls stunduðu 549 bátar strandveiðar á þessum svæðum í mánuðinum og því lentu um 71% þeirra í einhverjum umframafla samkvæmt frétt frá Fiskistofu.

Fiskistofa umframafli strandveiðibáta í júlí

Uppsafnaður umframafli mánaðarins var vissulega mjög misjafn eftir bátum eða frá einu kílói upp í 862 kíló.

Sá bátur sem veiddi mestan umframafla á þessum svæðum var Mýrarfell SU-136 með 862 kg en hann er gerður út á svæði C. Næstur kom Auðbjörg NS-200  með 650 kg. Í töflunni hér að neðan má sjá þá tíu báta sem fóru mest framúr á hverju svæði fyrir sig í júlí mánuði.

Fiskistofa umframafli strandveiðibáta í júlí 2

Fiskistofa minnir á að andvirði alls umframafla á strandveiðum verður innheimt af útgerðunum og rennur til ríkisins í Verkefnasjóð sjávarútvegs. Umframaflinn dregst eftir sem áður frá leyfilegum heildarafla á strandveiðunum svo að minna verður til skiptanna. Það er því hagur allra strandveiðimanna að veiða ekki umfram heimildir. Alls nam umframafli strandveiðibáta á þessum svæðum í maí tæpum 36,5 tonnum.

Deila: