Lönduðu makríl úr íslenskri lögsögu

Deila:

Barði NK kom til Neskaupstaðar í morgun með 1.100 tonn af makríl og síld. Frá þessu er greint á vef Síldarvinnslunnar. Aflinn er úr fjórum skipum, Barða og þremur öðrum skipum fyrirtækisins. Fram kemur á síðunni að makríllinn hafi veiðst í íslenskri lögsögu. Of hátt hlutfall hafi hins vegar komið af síld.

„Makríllinn mun fara í manneldisvinnslu en síldin fer til mjöl- og lýsisvinnslu. Við vorum áður úti í Smugu en þar var mjög dauft yfir veiðunum. Skipin færðu sig inn í íslensku lögsöguna og þá var byrjað að toga í kantinum út af Breiðdalsgrunni, en þar reyndist mikil síld vera í aflanum. Þá færðu skipin sig vestar. Byrjað var að toga við Lónsdýpið og endað við Hornafjarðardýpið og þá var makrílhlutfallið í aflanum mun betra. Það er erfitt að greina hvort um er að ræða makríl eða síld og þessar tegundir eru blandaðar á þessum slóðum. Nú eru fréttir af fiski að ganga úr færeysku lögsögunni og inn í þá íslensku og þar hlýtur makríll að vera á ferðinni. Skipin eru þegar komin þangað. Makríllinn sem við erum með núna er hinn fallegasti fiskur, en hann er um 500 grömm að stærð. Ég held að menn séu bara bjartsýnir á framhaldið og það er óhemju jákvætt að makríllinn veiðist í íslenskri lögsögu. Hann virðist vera heldur seinna á ferðinni en stundum áður en ég held að þetta komi allt saman. Það verður líklega klárað að landa í nótt og þá verður haldið rakleiðis til veiða á ný,“ segir Þorkell Pétursson skipstjóri.

Deila: