Árni Friðriksson leitar að makríl

Deila:

Rannsóknaskipið Árni Friðriksson fór úr höfn 3. júlí til þátttöku í árlegum alþjóðlegum leiðangri að því er fram kemur á vef Hafrannsóknastofnunar. Þar segir að eitt af meginmarkmiðum leiðangursins sé að meta magn og útbreiðslu makríls, kolmuna og norsk-íslenskrar síldar í norðaustur Atlantshafi að sumarlagi.

Fram kemur einnig að gagna sé aflað sem nýtast við vöktun og fjölbreyttar rannsóknir á ýmsum þáttum vistkerfisins, frá frumuframleiðni sjávar til útbreiðslu hvala. Leiðangurinn er sá fjórtándi í röð sem Hafró tekur þátt í en einnig verða skip frá Noregi, Færeyjum og Danmörku þátttakendur.

Líkt og áður er hægt að fylgjast með staðsetningu og ferli Árna á vef Hafrannsóknarstofnunar.

Leiðangurinn á Árna stendur í 20 daga. Gert er ráð fyrir að sigldar verði tæplega 3300 sjómílur eða um 6100 km og um 39 yfirborðstogstöðvar verða teknar á fyrir fram ákveðnum stöðum. Um borð eru 7 vísindamenn og 15 manna áhöfn.

Deila: