Sex milljarða hlutafjáraukningu lokið

Deila:

Landeldisfyrirtækið LAXEY, sem áður hét Icelandic Land Farmed Salmon, hefur lokið 6 milljarða króna hlutafjáraukningu til íslenskra fjárfesta. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu.

LAXEY hefur hafið uppbyggingu fiskeldisstöðvar í Vestmannaeyjum, annars vegar seiðaeldisstöð í Friðarhöfn en hins vegar áframeldisstöð ií Viðlagafjöru. Stefnt er að því að áframeldisstöðin muni framleiða 32 þúsund tonn af laxi árið 2031. Í dag eru framleidd tonn tvö þúsund.

Fram kemur að áframeldisstöðin verði byggð í sex jafn stórum áföngum. Fyrsti á að verða tilbúinn um mitt næsta ár og fyrsta slátrun fari fram síðla árs 2025. „Fyrsti áfangi verður einn og sér rekstrarlega sjálfbær en hver viðbótaráfangi mun auka hagkvæmni framleiðslunnar, með lægri fjárfestingarútgjöldum og rekstrarkostnaði á hvert framleitt kíló af laxi,” segir í tilkynningunni.

Fram kemur að yfir 100 manns muni starfa hjá fyrirtækinu þegar það hefur náð fullri framleiðslugetu.

Sjá nánar hér.

Deila: