114 þúsund tonn á land í ágúst

Deila:

Landaður afli í ágúst var 114,5 þúsund tonn sem er 10% meiri afli en í ágúst 2022. Þetta kemur fram á vef Hagstofunnar. Þar segir að botnfiskafli hafi verið 32 þúsund tonn sem sé 3% aukning á milli ára. Uppsjávarafli hafi verið rúm 78 þúsund tonn og hafi aukist um 14%. Þá aukningu megi rekja til aukinna makrílveiða.

Heildarafli á 12 mánaða tímabiliinu frá september 2022 til ágúst 2023 var 1.370 þúsund tonn sem er 9% minni afli en landað var á sama 12 mánaða tímabili árið á undan.

Upplýsingar um fiskafla sem birtast í þessari fréttatilkynningu eru bráðabirgðatölur. Þær byggjast á upplýsingum Fiskistofu.

 

Deila: