Síldarvinnsla hafin á Neskaupstað

Deila:

Á laugardagsmorgun kom Barði NK inn til Neskaupstaðar með 560 tonn af norsk – íslenskri síld og hófst vinnsla á síldinni í fiskiðjuveri Síldarvinnslunnar aðfararnótt mánudags. Frá þessu er greint á vef fyrirtækisins.

Þar er rætt við Þorskel Pétursson skipstjóra á Barða sem segir að síldin hafi veiðst við Bakkaflóadjúp í Langaneskantinum. „Við héldum til veiða að lokinni löndun sl. þriðjudag og stefndum í fyrstu í Smuguna til áframhaldandi veiða á makríl. Þá voru hins vegar daufar fréttir af veiðinni þar og því var ákveðið að við myndum skima eftir síld. Við fórum alveg vestur fyrir Melrakkasléttu og byrjuðum að leita þar austur eftir. Strax varð vart við síld en í fyrstu var hún ekki í miklum mæli og ekki í þéttum torfum. Þegar við nálguðumst Bakkaflóadjúpið komu hins vegar í ljós fallegar síldartorfur. Þær voru ekki mjög stórar en býsna þéttar.“

Hann segir að þar hafi þeir tekið tvö holl, fyrra hollið hafi gengið 330 tonn en það síðara 230 tonn. Síldin er mjög væn. „Það er afar lítil áta í henni og ég geri ráð fyrir að hér sé um gott hráefni að ræða fyrir vinnsluna. Þetta er mjög fallegur fiskur. Við komum til Neskaupstaðar á laugardagsmorgun en þá var verið að vinna makríl úr Vilhelm Þorsteinssyni þannig að við þurftum að bíða dálítið eftir að löndun hæfist,“ segir Þorkell.

Deila: