Matvælastofnun vill opinbera rannsókn

Deila:

Matvælastofnun hefur farið fram á opinbera rannsókn vegna meintra brota Arctic Sea Farm ehf. á lögum nr. 71/2008 um fiskeldi en í ágúst sl. tilkynnti fyrirtækið um tvö göt á kví við Kvígindisdal í Patreksfirði. Þetta kemur fram á vef stofnunarinnar. Eins og greint hefur verið frá hafa á annað hundrað eldislaxar veiðst í ám á Vesturlandi og Norðurlandi. Unnið er að því að drepa fiska og drepa til að reyna að koma í veg fyrir erfðablöndun.

Matvælastofnun bendir á að samkvæmt 22. gr laganna varðar það stjórnarmönnum og framkvæmdastjóra rekstrarleyfishafa sektum eða fangelsi allt að tveimur árum, ef sakir eru miklar, ef eldisfiskur sleppur úr fiskeldisstöð þar sem umbúnaði við fiskeldið hefur verið áfátt vegna athafna eða athafnaleysis þeirra sem framið hefur verið af ásetningi eða gáleysi.

Lögreglan á Vestfjörðum hefur málið til meðferðar og veitir Matvælastofnun ekki frekari upplýsingar um málið að sinni.

Deila: