Lítill afli í rallinu hjá Gullveri
Gullver NS kom til Seyðisfjarðar í gær eftir að hafa lokið tveimur þriðju af yfirstandandi togararalli. Afli skipsins var 27 tonn.
Þetta kemur fram á vef Síldarvinnslunnar. Þar segir að Gullver taki þátt í rallinu í fjórða sinn.
Rætt er við Steinþór Hálfdanarson skipstjóra. „Það hefur gengið einstaklega vel enda hefur verið blíða allan tímann sem er óvenjulegt á þessum árstíma. Við á Gullver erum búnir að taka 98 hol af þeim 151 sem okkur er ætlað að taka. Okkar verkefni er að sinna hinu svonefnda norðaustursvæði. Við byrjuðum á Glettingi og héldum síðan norður eftir allt vestur fyrir Skjálfanda. Síðan var haldið austur um á ný og endað á Glettingi, á sama stað og við byrjuðum. Í seinni hluta rallsins mun Gullver fara suður á Breiðdalsgrunn og síðan á Þórsbanka og Verkamannabanka alveg að færeysku lögsögunni og austur að Kremlarmúr. Aflinn sem við erum með er ekki mikill og er það í reynd samkvæmt venju. Við höfum ekki orðið varir við neina loðnu og er það óvenjulegt. Nú fer ég í land og Hjálmar Ólafur Bjarnason leysir mig af. Það má gera ráð fyrir að seinni hluti rallsins hjá Gullver taki eina fjóra eða fimm daga, en í fyrri hlutanum vorum við að jafnaði að taka 12 hol á dag,“ segir Steinþór.