Lönduðu 23 þúsund kössum í Grindavík

Deila:

Tómas Þorvaldsson GK landaði 23 þúsund kössum af fiski í Grindavíkurhöfn á þriðjudag. Aflinn var um 750 tonn eða 500 tonn af afurðum. Mest var þetta þorskur, ýsa, ufsi og karfi.

Fram kemur að aflinn hafi fengist á Vestfjarðarmiðum, Selvogsbanka og Jökuldjúpinu.

Deila: