Árferðisrannsóknir í 60 ár

Deila:

Árlegur vorleiðangur Hafrannsóknarstofnunnar lagði úr vör þann 13. maí síðastliðinn. Haldið var í leiðangurinn á rannsóknaskipinu Bjarna Sæmundssyni en hann er liður í langtímavöktun hafs. Vistkerfisrannsóknir eru framkvæmdar á dýrasvifi (átu), plöntusvifi (gróðri), næringarefnum, hita og seltu á hafsvæðinu við Ísland.

Um þetta er fjallað á vef Hafró. Þar segir að árferðisrannsóknir á þessu sviði hafi farið fram í maí eða júní í um 60 ár.

„Ásamt því að kanna ástandið á ákveðnum staðsetningum, svokölluðum sniðum, út frá landinu eru gerðar mælingar með síritandi mælitækjum á siglingaleið skipsins. Magn og útbreiðsla ljósátu er mæld með bergmálstækni og samhliða eru ljósátusýni skoðuð. Magn gróðurs er mældur með blaðgrænumælingum og líffræðileg fjölbreytni plöntusvifs er rannsökuð með smásjá og erfðafræði. Einnig er sýnum safnað fyrir Geislavarnir ríkisins vegna vöktunar á magni geislavirkra efna í sjó,” segir í frétt á vef Hafró.

Gert er ráð fyrir að leiðangurinn vari í 15 daga. Fylgjast má með gangi hans á skip.hafro.is.

Myndin er af vef Hafró.

Deila: