Sóttu veikan skipverja við Grænland

Deila:
Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar sótti í dag skipverja á skemmtiferðaskipi sem var alvarlega veikur. Skipið var þá statt við austurströnd Grænlands. Frá þessu greinir Landhelgisgæslan á Facebook.
Áhöfnin á TF-EIR var kölluð út til að sækja sjúklinginn og átti langt flug fyrir höndum. „Töluverða skipulagningu þarf fyrir verkefni sem þetta og tók þyrla Landhelgisgæslunnar á loft laust eftir klukkan níu í morgun. Frá Reykjavík var flogið beint að skipinu sem var statt um 130 sjómílur norður af Horni. Hífingar gengu vel og fóru fram við afar góðar aðstæður. Þegar búið var að koma sjúklingnum um borð var flogið til Ísafjarðar þar sem eldneyti var tekið á þyrluna,” segir í færslunni.
Því næst var flogið beint til Reykjavíkur og sjúklingurinn fluttur á Landspítalann.
Eins og sjá má á meðfylgjandi myndum var nokkur hafís umhverfis skemmtiferðaskipið þar sem hífingarnar fóru fram.
Deila: