Gera hlé á kolmunnaveiðum

Deila:

Bjarni Ólafsson AK hefur að undanförnu lagt stund á kolmunnaveiðar austur af landinu. Afli hefur verið heldur tregur og farið minnkandi. Alls hefur Bjarni Ólafsson landað þrisvar í Neskaupstað samtals 2.400 tonnum. Hann landaði síðast um 700 tonnum sl. miðvikudag.

Beitir NK hélt einnig til kolmunnaveiða og landaði 330 tonnum aðfaranótt sunnudags. Sturla Þórðarson skipstjóri segir að aflinn hafi verið afar rýr. „Við vorum fimm daga að veiðum 60-70 mílur austur af landinu og það var einungis dregið á daginn. Þetta var vinna frá 7 til 5 og síðan látið reka yfir nóttina. Kolmunninn hverfur alveg þegar dimma tekur,“ segir Sturla í spjalli á heimasíðu Síldarvinnslunnar.

Ákveðið hefur verið að Beitir haldi vestur fyrir land og hefji veiðar á íslenskri sumargotssíld. Bjarni Ólafsson liggur í höfn í Neskaupstað og mun ekki halda áfram kolmunnaveiðum að sinni.

 

Deila: