Búið að veiða fjórðung þorsksins á strandveiðum

Metdagur var á strandveiðum í gær, þegar 418 tonn komu að landi. Í fyrra komu mest 474 tonn að landi á strandveiðunum. Hafa ber í huga að í fyrra voru þegar yfir leik 72 bátum fleiri á strandveiðum en skráðir voru í gær.
Hér má sjá hvernig veiðst hefur fyrstu sjö daga vertíðarinnar. Til samanburðar má á ljósgráum súlum hér að neðan, sjá fyrstu sjö dagana í fyrra.
Neðst má svo sjá að fyrir daginn í dag höfðu 22,2% aflaheimilda í þorski verið landað, eða tæplega fjórðungur.