Stofnmæling gekk vel en magafylli þorsks lítil

Deila:

„Þetta gekk afar vel í ár og frátafir voru nánast engar,“ segir Ingibjörg G. Jónsdóttir, verkefnisstjóri yfir verkefninu stofnmæling botnfiska á Íslandsmiðum hjá Hafrannsóknastofnun. Fjögur skip tóku að þessu sinni þátt í mælingunni – sem stundum er kallað togararall. Bæði skip Hafrannsóknastofnunar tóku þátt í verkefninu en einnig togararnir Breki VE og Gullver NS.

Ingibjörg segir að veður geti sett strik í reikninginn í marsmánuði, þegar rallið fer fram, en að þessu sinni hafi það verið með besta móti. „Það hefur þau áhrif að mælingin tekur styttri tíma og færri dagar fara í brælustopp og svo er öll vinna á sjó auðveldari í góðu veðri,“ útskýrir hún.

Nánar er rætt við Ingibjörgu um framgang togararallsins í nýtútkomnu tölublaði Ægis.

Deila: