Tillaga að rekstrarleyfi fyrir Laxey

Deila:

Matvælastofnun hefur unnið tillögu að rekstrarleyfi fyrir Laxey hf. vegna fiskeldis á landi í Viðlagafjöru í Vestmannaeyjum. Um er að ræða nýtt rekstrarleyfi fyrir 7.000 tonna hámarkslífmassa vegna matfiskeldis á frjóum laxi og regnbogasilungi. Þetta kemur fram á vef stofnunarinnar.

Þar segir að athugasemdir við tillöguna skulu vera skriflegar og sendar Matvælastofnun á mast@mast.is. Frestur til að skila inn athugasemdum er til 11. júní 2024.

Tillaga að rekstrarleyfi Laxey hf. í Viðlagafjöru í Vestmannaeyjum

Umhverfismatsskýrsla fyrirtækisins

Álit Skipulagsstofnunar

Deila: