Hitastig sjávar aldrei hærra á heimsvísu

Hitastig sjávar hefur aldrei mælst hærra á heimsvísu en á síðasta ári og hraði hækkunar sjávarborðs hefur tvöfaldast síðustu tvo áratugi. Þetta er á meðal helstu niðurstaðna í nýrri skýrslu (State of the Ocean Report 2024) á vegum Alþjóðahaffræðinefndar UNESCO (IOC) sem birt var í dag. Greint er frá þessu á vef Stjórnarráðsins.
„Hafið leggur grunn að tilveru okkar og fullveldi sem og hagsældar okkar og menningu sem þjóðar og á djúpar rætur í sjálfsmynd okkar Íslendinga,“ segir Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra. „Þess vegna eru niðurstöður skýrslunnar verulegt áhyggjuefni. Allt lífríki jarðar á rætur sínar að rekja til hafsins og því mikilvægt að alþjóðasamfélagið beini athygli sinni í ríkari mæli að heilbrigði sjávar í baráttunni gegn loftslagsbreytinum.“
Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir matvælaráðherra ávarpaði fundinn.
„Í dag er þörf á hnattrænum lausnum fyrir þær áskoranir sem nú blasa við svo sem súrnun sjávar og plastmengun. Alþjóðlegt samstarf er því eina leiðin fram á við“ segir Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir matvælaráðherra. „Ísland hefur skuldbundið sig til að tryggja sjálfbæra nýtingu hafsins og vernda líffræðilegan fjölbreytileika þess fyrir komandi kynslóðir. Í því samhengi er skýrslan mikilvæg. Hún byggir á bestu fáanlegu gögnum, er greind með ströngum vísindalegum aðferðum og sett fram án hlutdrægni,“ sagði Bjarkey.