Tveir fiskibátar í vandræðum

Deila:

Kalla þurfti út áhafnir tveggja björgunarskipa Slysavarnafélagsins Landsbjargar, Varðar II á Patreksfirðir og Bjargar á Rifi til að koma fiskibátum til aðstoðar. Landsbjörg greinir frá þessu í tilkynningu. Vörður II var kallaður til klukkan sex að morgni vegna lítils báts í vélarvandræðum. Hann var þá staddur fimm sjómílur norður af Bjargtöngum.

Fimmtán mínútum fyrir klukkan átta var taug komin frá Verði II í bátinn og þeir á leið til Patreksfjarðar. Hæg norðan gola var á staðnum en þoku­slæðing­ur. Rétt fyr­ir klukk­an 11 í morg­un kom Vörður svo með bát­inn til hafn­ar á Pat­reks­firði.

Um klukkan hálf ellefu í gærmorgun var Björg kölluð út vegna báts undan Rauðasandi. Hann var með bilað stýri og rak hægt undan norðanáttinni. Engin brá ðhætta var á ferðum. Báturinn var sóttur yfir Breiðafjörðinn.

Deila: