Ríflega 5000 seiði hafi sloppið út í sjó

Deila:

Matvælastofnun gerir ráð fyrir að um 5.200 fiskar (seiði) hafi sloppið úr fiskeldisstöð Samherja í Öxarfirði í maí. Niðurstöður rannsóknar eru birtar á vef stofnunarinnar. Tilkynning barst frá Samherja mánudaginn 6. maí um óhapp sem leitt hefði getað til stroks seiða úr stöðinni.

„Strokið uppgötvaðist við eftirlit starfsmanna 6. maí er seiði sáust í settjörn stöðvarinnar en talið er að atvikið hafi átt sér stað 2. maí þegar vatnsyfirborð hækkaði í seiðakari með þeim afleiðingum að fiskur sogaðist út um yfirfallsop og yfir í frárennsliskassa. Seiðin voru u.þ.b. 70-80 gr. og ósmoltuð. Ekki var hægt að útiloka að seiðin hafi smoltast í settjörn og komist út í sjó. Samkvæmt upplýsingum frá rekstraraðila fundust 868 seiði utan kers en óljóst var á þeim tímapunkti hversu mörg seiði struku í heild,” segir í frétt á vef stofnunarinnar.

Þá hófst rannsókn á málinu og í ljós kom að rekstraraðili gat ekki gert grein fyrir 5.196 fiskum. Matvælastofnun dregur þá ályktun að það sé sá fjöldi seiða sem mögulega hafi smoltast í settjörn og strokið út í sjó.

„Matvælastofnun setti alvarleg frávik í eftirlitsskýrslu sem birt hefur verið á mælaborði fiskeldis á heimasíðu stofnunarinnar þar sem ljóst er að fiskeldisstöðin var ekki útbúin eldisbúnaði sem var nægjanlega fiskheldur. Þá var fiskeldisstöðin ekki útbúin nægjanlega fínofnum netum til að fanga þau seiði sem struku úr stöðinni. Matvælastofnun mun hafa eftirlit með að unnið hafi verið úr alvarlegum frávikum.”

Deila: