Nýtt millifærslukerfi tekið í notkun

Deila:

Fiskistofa hefur tekið í notkun nýtt millifærslukerfi sem býður upp á einfaldar og þægilegar millifærslur í snjallsíma. Frá þessu greinir á vef stofnunarinnar. Þar segir að í nýja kerfinu geti notendur framkvæmt millifærslur beint úr símanum sínum. Eins verður nú mögulegt með nýju kerfi að millifæra á báðum fiskveiðiárum frá 1. til 15. September.

Tengjast nýju millifærslukerfi

Gamla millifærslukerfinu verður lokað 21. ágúst næstkomandi, þar sem Ísland.is er að loka fyrir þá innskráningarleið sem það kerfi notar. Við hvetjum alla notendur til að kynna sér nýja kerfið sem fyrst og hefja notkun þess til að tryggja hnökralausa þjónustu.

Athugið

  • Nýtt umboð þarf fyrir notkun á nýja kerfinu

  • Eldri umboð virka ekki í nýju kerfi

  • Vinsamlegast kynnið ykkur leiðbeiningar um veitingu umboðs

Þeir sem þurfa aðstoð eða leiðbeiningar við að nota nýja kerfið eru hvattir til að hafa samband við Fiskistofu í gegnum síma eða með því að senda tölvupóst á fiskistofa@fiskistofa.is.

Deila: