Sjö þúsund útselir – stofninn stendur í stað

Deila:

Niðurstöður talninga á útsel við Ísland haustið 2022 liggja nú fyrir. Ekki er marktæk breyting á stærð stofnsins frá árinu 2005 – stofninn stendur því í stað. Frá þessu er greint á vef Hafró.

Þar segir að stærð íslenska útselsstofnsins hafi verið metin reglulega frá 1982 með talningum á kópum að hausti. Í talningunni árið 2022 hafi heildarkópaframleiðslan verið metin 1551 kópar (95% öryggismörk = 1486-1613). Mikilvægasta kæpingarsvæðið hafi líkt og áður verið Breiðafjörður með um 62% af kópunum.

„Út frá þessari kópatalningu er stofnstærð útsels árið 2022 metin 6697 dýr (95% öryggismörk = 5576-7841). Það þýðir um 27% fækkun í stofninum frá fyrstu talningu sem fór fram árið 1982, en jafnframt um 6,8% fjölgun frá árinu 2017 þegar talning fór síðast fram. Breytingin á stofnstærð milli áranna 2005 og 2022 var þó ekki tölfræðilega marktæk sem þýðir að stærð stofnsins stendur í stað.”

Sjá niðurstöðurnar hér.

Deila: