Frumvarp um lagareldi ekki lagt fram

Deila:

Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir matvælaráðherra mun ekki leggja fram áður boðað frumvarp um lagareldi, sem til stóð að lagt yrði fram. Frumvarpið er ekki á þingmálaskrá ríkisstjórnarinnar en skiptar skoðanir eru um málið innan þingflokka ríkisstjórnarinnar.

Frumvarpið var lagt fram á síðasta þingi en hlaut ekki afgreiðslu.

Á þingmálaskrá er hins vegar að finna frumvarp til laga um breytinga á lögum um sérstakt gjald vegna ólögmæts sjávarafla. Með frumvarpinu er lagt til að gerðar verði breytingar á ákvæðum laganna sem snúa að Verkefnasjóði sjávarútvegsins, skerpt verður á hlutverki sjóðsins og þeim verkefnum sem honum ber að styðja við sbr. tillögur Auðlindarinnar okkar. Til stendur að það frumvarp verði lagt fram í nóvember.

Einnig er á þingmálaskrá tillaga til þingsályktunar um sjávarútvegsstefnu. Stefnan er unnin samkvæmt tillögum úr Auðlindinni okkar. Stefnunni er ætlað að vera leiðbeinandi við ákvarðanatöku um sjávarútveg til að stuðla að hagkvæmri og sjálfbærri nýtingu sjávarauðlinda í sátt við umhverfi og samfélag.

Loks er að finna á þingmálaskránni tillögu til þingsályktunar um verndun hafsins.

 

 

Deila: