Örfirisey til veiða á ný

Deila:

Frystitogarinn Örfirisey RE er farinn aftur til veiða eftir stutt viðgerðarhlé í Tromsö í Norður-Noregi. Togarinn kom þangað sl. mánudag eftir að bilun varð í aðalvél þar sem skipið var að veiðum í norskri lögsögu í Barentshafi.

Að sögn Herberts Bjarnasonar, tæknistjóra skipa hjá HB Granda, lauk viðgerð fyrir helgi. Vélin var ræst og prófuð í nótt og virkaði fullkomlega.

,,Viðgerðin var framkvæmd af fulltrúa vélaframleiðanda í Noregi með aðstoð frá vélaverkstæði í Tromsö. Bilunin reyndist vera í svokölluðum tímagír sem sér um að stilla af tíma milli knastáss og kambáss í vélinni. Legur í tveimur millitannhjólum bræddu úr sér þegar smurolíurör, sem sá um að flytja smurolíu að tannhjólunum, gaf sig. Það þurfti því að skipta út legum, öxlum og tannhjólum,” segir Herbert Bjarnason í samtali á heimasíðu HB Granda.

Afla var landað úr skipinu og í framhaldinu var tekin olía fyrir veiðiferðina sem hófst á föstudag.

Deila: