Íslensku sjávarútvegsverðlaunin veitt

Deila:

Íslenska sjávarúrtvegssýningin í Kópavogi var fyrst haldin fyrir 40 árum og að kvöldi fyrsta dags yfirstandandi sýningar voru Íslensku sjávarútvegsverðlaunin veitt við hátíðlega athöfn til aðila í sjávarútvegi og sýnenda. Verðlaunin, sem veitt voru í fyrsta skipti árið 1999, heiðra framúrskarandi árangur í íslenskum og alþjóðlegum sjávarútvegi. Þau leggja áherslu á nýsköpun og byltingarkenndar vörur á markaðnum og beina athyglinni að framúrskarandi þjónustu fyrirtækja.Verðlaunaathöfnin hófst með því að 40 ára afmæli IceFish var fagnað og sérstök viðurkenning veitt öllum tryggustu sýnendum IceFish frá upphafi sem eru Atlas, Baader, Borgarplast, Friðrik A. Jónsson ehf. Marel, Danish Export Association, Eimskip, Fiskifréttir, Hampiðjan, Olís, Héðinn, Sæplast, Slippurinn, DNG og Scanmar.

Fyrirtækið Einhamar í Grindavík fékk verðlaun fyrir fyrir árangur fyrirtækisins í áframhaldandi framleiðslu hágæða fiskafurða í bænum, þrátt fyrir tíðar lokanir og alvarlegar truflanir á innviðum vegna nýlegra eldsumbrota á Reykjanesskaganum.

Íslenskt sjávarfang, sem starfar í Kópavogi og á Þingeyri, fékk viðurkenningu fyrir að hafa náð framúrskarandi árangri á ferskfisksmarkaðnum með úrvalsafurðir.

Samherja voru veitt verðlaun fyrir fyrir framleiðslu hágæða afurða fyrir alþjóðlega markaði.

Eiríkur Sigurðsson, skipstjóri á Reval Viking, hlaut verðlaunin fyrir að vera framúrskarandi íslenskur skipstjóri. Eiríkur, sem starfar fyrir Reyktal Fisheries, hefur innleitt nýja tækni til að draga úr kolefnisspori fyrirtækisins. Hann hefur einnig verið frumkvöðull á sviði nýsköpunar í léttitrollsveiðum.

Aðrir vinningshafar ársins voru:

• Skilvirkni í sjávarútvegi og fiskeldi, lítið fyrirtæki < 50 starfsmenn – GreenFish

• Skilvirkni í sjávarútvegi og fiskeldi, stórt fyrirtæki > 50 starfsmenn – Brunvoll AS

• Verðmætasköpun í vinnslugeiranum, lítið fyrirtæki < 50 starfsmenn – Klaki Tech

• Verðmætasköpun í vinnslugeiranum, stórt fyrirtæki > 50 starfsmenn – Marel

• Snjallverðlaun fyrir nýsköpun á sviði aukafurða – Ace Aquatec

• Besta nýja varan sem var kynnt á sýningunni – Hampiðjan hf

• Besti einstaki bás undir 50 m² – Raftákn ehf

• Besti einstaki bás yfir 50 m² – TM

• Besti þjóðar-, svæðis- eða hópbás – Pavilion of Denmark

Deila: