Breytt atferli loðnu vegna hlýnunar

Vísindamenn frá Hafrannsóknastofnun, í samstarfi við Tækniháskólann í Danmörku (DTU Aqua), birtu nýlega grein í vísindaritinu Fisheries Oceanography þar sem breytingar á útbreiðslu loðnu í kjölfar loftlagsbreytinga á Íslandi-Austur-Grænlandi-Jan Mayen svæðinu var rannsökuð. Frá þessu er greint á vef Hafró.
Í greininni kemur fram að miklar breytingar hafi orðið á dreifingu og farleiðum loðnu. „Þannig færðust meginfæðusvæði hennar frá Íslandshafi norður af landinu til austurstrandar Grænlands í byrjun aldarinnar. Því til viðbótar hefur komu hrygningarloðnu inn á svæðin norður af Íslandi að vetri átt sér stað seinna frá og með árinu 2003. Mismunandi tölfræðilíkönum var beitt í þessari rannsókn sem gáfu til kynna að þessar breytingar á dreifingu loðnunnar tengdust umhverfisbreytingum í hafinu,” segir í fréttinni.
Fram kemur að verkefnið hafi verið hluti af Horizon 2020-verkefni Evrópusambandsins, ECOTIP. Áhersla hafi verið lögð á að greina vistfræðilega vendipunkta í norðurhöfum, það er að segja að ákvarða hvenær breytingar á vistkerfisþáttum ná mörkum sem munu hafa víðtækari áhrif.