Hólmasker fær nýja handflökunarlínu

Deila:

Á dögunum var gengið frá samningi milli Slippsins Akureyri og fiskvinnslunnar Hólmaskers í Hafnarfirði um smíði og uppsetningu á nýrri handflökunarlínu sem er sú fyrsta sinnar tegundar í framleiðslu DNG fiskvinnslubúnaðar hjá Slippnum Akureyri. Línan er hönnuð og smíðuð af starfsmönnum Slippsins í Grindavík og er áformað að hún verði sett upp í vinnslustoppi hjá Hólmaskeri í kringum jólin. Frá þessu er greint á vef SlippsinsDNG.

Í fréttinni segir að Fiskvinnslan Hólmasker sérhæfi sig í vinnslu á ýsu, sem að stærstum hluta fari sem frystar afurðir á Bandaríkjamarkað. Hlutur ferkra ýsuafurða hafi þó smám saman farið vaxandi. Fyrirtækið vinnur afurðir úr um 4.000 tonnum af ýsu árlega. Hráefnið kemur að sögn aðallega frá Vinnslustöðinni í Vestmannaeyjum, sem á meirihluta í fyrirtækinu. Albert Erluson framkvæmdastjóri á fjórðungshlut í Hólmaskeri.

Fram kemur í fréttinni að 90% hráefnisins hjá Hólmaskeri sé handflakað. Nýja línan verði með 10 vinnustöðvum í stað þeirra átta sem eru í núverandi línu. „Handflökunarlínan okkar í dag er orðin gömul og slitin og kominn tími á endurnýjun hennar. Ég sá líka tækifæri til að fjölga flökunarstöðvum með nýrri línu, bæði til að auka afköst og líka til að mæta þeirri þróun sem hefur verið að undanförnu í ýsunni að fiskurinn er aðeins smærri en á síðustu árum,“ er haft eftir Alberti í fréttinni. Fyrr á þessu ári tók Hólmasker í notkun nýjan Promas framleiðsluhugbúnað frá Slippnum sem mun nýtast að fullu í að halda utan um framleiðslu, gæði og afköst í vinnslunni á nýju handflökunarlínunni.

„Nýja handflökunarlínan er í reynd þriðja verkefnið sem Slippurinn vinnur fyrir okkur hér í Hólmaskeri og í ljósi góðrar reynslu af þeirra hönnun og framleiðslu lá beint við að semja við fyrirtækið um nýju línuna,“ segir Albert.

Nánar má lesa um samstarf Hólmaskers og Slippsins Akureyri hér.

Deila: