Hljóp á snærið hjá nemendum í vélstjórn

Nemendur í vélstjórn í VMA fengu á dögunum tækifæri til að fylgjast með endurbótum á sveifarási frystitogarans Snæfells EA, sem er í eigu Samherja. Frá þessu er greint á vef Samherja. Þar er tekið fram að um sé að ræða sérhæft verkefni sem krefjist mikillar nákvæmni. Erlendir sérfræðingar hafi verið fengnir til landsins til að vinna verkið.
Fram kemur að vél skipsins sé í upptekt auk þess sem unnið sé að ýmsum uppfærslum og endurbótum.
Í fréttinni segir að Bjarni Pétursson sviðsstjóri skipaþjónustu Slippsins hafi ákveðið að fá til landsins sérfræðinga hjá Metalock í Þýskalandi til að slípa sveifarásinn. Yfirumsjón með vélarupptekt hafði Zeppelin Danmark Power Systems. Zeppelin Danmark er umboðsaðili fyrir MAK og Catepillar vélar.
„ Viðurkenndir sérfræðingar í að slípa sveifarása eru tiltölulega fáir í heiminum og því var nauðsynlegt að fá þessa erlendu sérfræðinga til Akureyrar í tengslum við þetta verkefni. Hjörvar Kristjánsson skipaverkfræðingur hjá Samherja nefndi við okkur að gagnlegt gæti verið að bjóða nemendum í vélstjórn við Verkmennaskólann á Akureyri á verkstæði Slippsins og fylgjast með þegar sveitarásinn var slípaður. Við stukkum strax á þessa góðu hugmynd og skemmst er frá því að segja að skólinn og nemendurnir þáðu boðið samstundis. Allir ferlar voru útskýrðir mjög vel fyrir nemendunum, sem fengu að mínu viti kærkomið tækifæri til að kynnast öllum þáttum slíks verkefnis,“ segir Bjarni Pétursson hjá Slippnum Akureyri.
Hjörvar Kristjánsson skipaverkfræðingur hjá Samherja segir í fréttinni að afar mikilvægt sé að vélstjórabrautin sé sem öflugust, brautin styrki svæðið sem þekkingarsetur í haftengdri starfsemi.
Myndin er af vef Samherja.