Huldu fagnað í Grindavík

Deila:

Síðdegis í dag verður formleg móttökuathöfn við Grindavíkurhöfn þar sem fagnað verður heimkomu togskipsins Huldu Björnsdóttur GK-11 sem Þorbjörn hf. hefur fengið í flota sinn. Skipið var smíðað í skipasmíðastöðinni Armon í Gijon á Spáni en samið var um smíðina á útmánuðum árið 2022. Þetta er ekki síst merkilegur áfangi fyrir þær sakir að um er að ræða fyrstu nýsmíði fyrirtækisins frá árinu 1967 en skipið er hönnun frá Skipasýn ehf. Hulda Björnsdóttir GK-11 er 58 metra langur togari og 13,6 metra breiður.

Hulda Björnsdóttir GK sigldi inn í Grindavíkurhöfn um hádegisbil í gær og segist Valur Pétursson, skipstjóri, vera hæstánægður með reynsluna af skipinu á heimsiglingunni frá Spáni.
„Við fengum að reyna skipið í talsverðum vindi og það stóð sig prýðilega. Mér líst mjög vel á skipið, allar prófanir gengu mjög vel og verður spennandi að fara á veiðar,“ segir Valur.

 

 

Deila: