Allur hagnaður í fjárfestingu

Deila:

Á síðustu fimm árum hafa Samherji Ísland og Samherji fiskeldi varið meira en eitt hundrað prósentum hagnaðar í fjárfestingar beint í rekstri félaganna, þ.e. í nýjum skipum, vinnsluhúsum og tækjabúnaði. Árið 2020, þegar Samherji vígði nýtt vinnsluhús á Dalvík, fór hlutfallið upp í 145%. Frá þessu er greint á vef Samherja en þar er vísað í erindi Baldvins Þorsteinssonar, stjórnarformanns Samherja hf., á Sjávarútvegsdeginum, árlegum fundi Deloitte, Samtaka fyrirtækja í Sjávarútvegi og Samtaka atvinnulífsins undir yfirskriftinni: „Hvað næst?“ þar sem fjallað var um stöðu og framtíðarhorfur í fiskeldi, veiðum og vinnslu. Baldvin, sem er einnig stjórnarformaður sjávarútvegsfyrirtækisins Alda Seafood í Hollandi, kom víða við í erindi sínu.

Í erindi sínu bar hann meðal annars saman mismunandi starfsumhverfi í sjávarútvegi á Íslandi, Noregi og annars staðar í Evrópu, þar sem Alda Seafood er með starfsemi.

„Baldvin sagði að stöðugar fjárfestingar á undanförnum árum hefðu skapað Samherja visst samkeppnisforskot. Fjárfestingar félagsins síðustu ár hefðu miðast við endurnýjun skipaflotans og aukna verðmætasköpun á Íslandi. Fjárfestingar Samherja í rekstrinum, þ.e. í skipum, vinnsluhúsum og tækjabúnaði, nema alls 31,8 milljörðum króna á síðustu fimm árum á verðlagi hvers árs,” segir í greininni.

Hann fór líka yfir að stærsta einstaka verkefnið á komandi árum sé uppbygging landeldis á Reykjanesi.

„Stærsta einstaka verkefnið er uppbygging landeldis á Reykjanesi sem er spennandi tækifæri. Við sjáum að viðskiptavinir okkar vilja fjölbreytt vöruframboð og laxinn er orðinn stærsta varan í flestum löndum.

Við viljum og teljum nauðsynlegt að bjóða þeim að kaupa lax, sem er lykillinn í áframhaldandi uppbyggingu félagsins. Skóflustungan að fyrsta áfanga landeldisstöðvar Samherja fiskeldis á Reykjanesi verður tekin 15. nóvember. Kostnaður við fyrsta áfangann er um 35 milljarðar króna en fullbúin mun landeldisstöðin á Reykjanesi kosta um 95 milljarða króna. Við þurfum sömuleiðis að endurnýja skipaflotann og auka þar með verðmætasköpun og minnka kolefnissporið,“ sagði Baldvin Þorsteinsson stjórnarformaður Samherja hf. á Sjávarútvegsdeginum.

Frétt Samherja

Deila: