Gullver enn með fullfermi

Ísfisktogarinn Gullver NS kom til Seyðisfjarðar aðfaranótt mánudags með fullfermi, eða 115 tonn. Þetta kemur fram á vef Síldarvinnslunnar. Þar er rætt við Þórhall Jónsson, sem er ánægður með túrinn. Þeir hafi hafið veiðar á Skrúðsgrunni og þar fengið ýsu. Á Litlagrunni hafi svo fengist stór og góður þorskur.
„Hann var að spá brælu nánast allan tímann en við urðum lítið varir við hana. Mér finnst haustið vera búið að vera afar gott hér fyrir austan bæði veðurfarslega og varðandi fiskirí. Það hefur sérstaklega fengist góður fiskur norður frá eða á Héraðsflóanum og á Glettingi,” segir Þórhallur.