Veiðar hafnar á íslenskri sumargotssíld

Veiðar á íslenskri sumargotssíld eru hafnar vestur af landinu. Frá þessu segir á vef Síldarvinnslunnar.
Þar er rakið að Beitir NK sé kominn á miðin í Kolluál. Haft er eftir Sigurði Valgeir Jóhannessyni skipstjóra að eitthvað verði beðið með að hefja veiðar. Þær verði skipulagðar með tilliti til vinnslunnar en brýnt sé að hver farmur sé sem ferskastur þegar komið er með hann til vinnslu í fiskiðjuverinu í Neskaupstað.
„Vilhelm Þorsteinsson EA, sem einnig landar í Neskaupstað, hefur hafið veiðar og var með 370 tonn sl. nótt. Það eru fleiri skip á miðunum. Gullbergið fékk 110 tonn í gærkvöldi og það eru einhver skip að hífa einmitt núna. Fínasta veður er á miðunum í þessum töluðu orðum. Það gæti þó kaldað í kvöld og nótt en það ætti að vera skammvinnt. Hér er um að ræða hreina íslenska sumargotssíld en hún hefur að undanförnu verið veidd í nokkrum mæli austur af landinu í bland við norsk – íslensku síldina. Það er býsna langt austur frá miðunum hérna, eða yfir 30 tíma sigling og það skiptir nánast engu máli hvort farið er suður fyrir eða norður fyrir landið hvað siglingatíma varðar,” segir Sigurður Valgeir.