„Virkilega góð tilfinning að koma heim með nýtt skip“

„Tilfinningin að sigla nýju skipi í heimahöfn er virkilega góð og eitthvað sem venst vel. Mér finnst að það séu forréttindi að hafa fengið að taka þátt í lokaáfanganum á þessu verkefni á smíðatímanum og sigla síðan skipinu heim til Íslands,“ sagði Valur Pétursson, skipstjóri á Huldu Björnsdóttur GK-11 við heimkomuna til Grindavíkur. Sjö voru í áhöfn skipsins á heimsiglingunni en Valur hefur fylgt smíði skipsins eftir í Gijon á Spáni frá því í maí síðastliðnum.
Mikilvægt að fylgjast með lokafrágangi
„Ég kom að þessu verki í maí en vélstjórarnir Þórhallur Gunnlaugsson og Ægir Óskar Gunnarsson voru þá þegar búnir að vera þarna úti um tíma. Okkar hlutverk var að fylgjast með smíðinni og lokafrágangi, í reynd allt frá stærstu hlutum niður í útfærslu á hurðastoppurum. Tilgangurinn með svona eftirliti er fyrst og fremst að gæta hagsmuna kaupandans og að sjá til þess að farið sé eftir smíðalýsingu skipsins,“ segir Valur um dvölina á Spáni síðustu mánuði.
Haggaðist ekki í 30 metrum
Í stuttu máli gekk heimsiglingin eins og í sögu. „Við fengum skítviðri á okkur á hlið hér suður af landinu, sló upp í 30 metra en skipið haggaðist ekki. Ég er viss um að Hulda á eftir að reynast sérlega vel, þetta er mjög öflugt og kraftmikið skip. Innan skips hefur verið vandað mjög til verka, allar innréttingar mjög snyrtilegar og fallegar og klefarnir vel útfærðir. Mér líst líka mjög vel á vinnslukerfið frá Micro ehf. á millidekkinu og búnaðurinn í lestinni er þannig útfærður að hægt er að fjarvinna með lyftarabúnaðinn í gegnum myndavélar hvaðan sem er í skipinu. Auðvitað á eftir að koma reynsla á þetta allt saman þegar skipið fer á veiðar en mér finnst hugmyndin að baki vinnslunni mjög góð og hef fulla trú á henni,“ segir Valur en kerfið er þannig útfært að um 12-13 tonn af fiski geta verið í vinnslu í einu á millidekkinu.
Af frystingunni á ísfiskinn
Valur færði sig á Huldu Björnsdóttur GK af frystiskipinu Hrafni Sveinbjarnarsyni GK sem hann hefur verið á síðan 1995. „Þetta er því á vissan hátt nýr heimur fyrir mér því þegar ég var síðast á ísfiski vorum við með skóflur að moka ís í lestinni. Þetta er því allt annar heimur sem blasir við hér þó um sé að ræða ísfiskskip, mikil tækni og gjörbreytt vinnuaðstaða. Hér um borð á eftir að fara vel um bæði áhöfn og afurðir. Það eru aðalatriðin, bæði að vel fari um mannskapinn, að vinnuaðstaðan sé góð og aflameðferðin sé fyrsta flokks. Það verður spennandi að hefja veiðar,“ segir Valur Pétursson, skipstjóri.
Á efstu mynd eru glaðbeittir yfirmenn á Huldu Björnsdóttur við heimkomuna. Frá vinstri: Ægir Óskar Gunnarsson, vélstjóri, Valur Pétursson, skipstjóri og Þórhallur Gunnarsson, vélstjóri. Þeir fylgdu smíðinni eftir á Spáni síðustu mánuði.