Stórhuga hafnir í Snæfellsbæ

Hafnarsjóður Snæfellsbæjar rekur hafnirnar í Ólafsvík, á Rifi og Arnarstapa sem samanlagt hafa að jafnaði tekið á móti 30- 40 þúsund tonna sjávarafla á ári síðustu árin. Hafnirnar liggja enda vel við gjöfulum fiskimiðum fyrir Vesturlandi og í Breiðafirði. Björn Arnaldsson, hafnarstjóri, segir að verulegum vexti í lönduðum afla á síðustu árum hafi verið fylgt eftir með framkvæmdum í hafnarmannvirkjum til að geta veitt viðskiptavinum sem allra besta þjónustu. Þó um tiltölulega litlar hafnir sé að ræða þá þurfi að framkvæma af stórhug og með framtíðina í huga.
Strandveiðin mikilvæg
„Strandveiðin gekk vel hjá okkur í sumar líkt og undanfarin ár og mikill fjöldi báta sem lagði upp í höfnum okkar,“ segir Björn en á síðustu árum hefur fjölgað þeim strandveiðiútgerðum sem kjósa að róa frá höfnum Snæfellsbæjar og leggja þar upp. Sem best sést á því að daglegar landanir eru oft vel yfir 100 talsins og bátar að koma inn frá því fyrri part dags og langt fram á kvöld. Björn segir að í höfnunum þremur sé samanlagt landað 15- 18% af öllum strandveiðiafla á landinu. „Það gefur auga leið að strandveiðin er snar þáttur í okkar rekstri og þjónustu á ársgrundvelli,“ segir Björn. Þó mikið líf sé í höfnunum á sumrin í tengslum við strandveiðiútgerðina eru haustin líka mjög lífleg í stærri báta útgerðinni sem og auðvitað vetrarvertíðin. Eitt tímabil tekur við af öðru og enginn tími ársins rólegur.
Miklar framkvæmdir án lántöku
Þrátt fyrir að hafnarsjóður Snæfellsbæjar sé ekki stór þá hafa síðustu ár einkennst af krafti í framkvæmdum í og við hafnirnar, bæði nýframkvæmdum og viðhaldi hafnarmannvikjanna sjálfra, götum og húsakosti við hafnirnar. Á tíu árum, frá 2013 til 2023, var framkvæmt á vegum hafnarsjóðs Snæfellsbæjar fyrir tæplega tvo milljarða króna og var kostnaðarhlutur hans þar af um milljarður króna en annar framkvæmdakostnaður var greiddur af Hafnabótasjóði. „Tekjur okkar hafa síðustu ár verið á fjórða hundrað milljónir á ári en okkur hefur samt tekist að fjármagna framkvæmdirnar með eigin fé og án þess að taka lán. Þó hafnarsjóður sé ekki stór á landsvísu þá erum við fimmta stærsta höfnin þegar kemur að tekjum af aflagjöldum sem er meirihluti okkar tekna. Gæfa okkar er hversu verðmætum sjávarafla er landað hjá okkur, fyrst og fremst þorski. Hlutfallslega eru verðmæti landaðs afla hjá okkur því meiri en margra annarra hafna,“ segir Björn Arnaldsson.