„Veljum grænt stál fyrir íslenskar hafnir“

Deila:

„Það er okkur mikilvægt að horfa til sjálfbærni og umhverfisþáttar í mannvirkjagerð eins og hafnargerð. Framleiðsla stáls með grænni orku hefur aukist og fer það vel saman við að bjóða endurvinnanlega vöru sem raskar jafn lítið umhverfi og lífríki eins og stál. Það er því mikilvægt að við ákvarðanir í framkvæmdum séu lífríki sjávar og umhverfis haft að leiðarljósi,“ segir Þorsteinn Arnórsson, framkvæmdastjóri GA Smíðajárns en fyrirtækið kemur mikið við sögu í hafnaframkvæmdum á Íslandi sem innflytjandi og seljandi stáls í hafnamannvirki. Þorsteinn segir hreint ekki sama hvaða efni eru valin í þessi mannvirki.

Gera þarf umhverfiskröfur í framkvæmdum Þorsteinn er þeirrar skoðunar að sveitarfélög eigi að setja sér stefnu í þessum málum og gera kröfu um að aðföng og framkvæmdir séu eins umhverfisvæn og kostur er. „Ísland getur verið leiðandi með skýra stefnu um græn skref við hafnir og strendur Íslands. Sveitarfélög og ríkið eiga að gera ríka kröfu til umhverfis í framkvæmdum og margir framleiðendur kappkosta að bjóða vöru sem hefur lægra kolefnisspor en sambærileg vara. Munurinn liggur oft í framleiðsluferlinu á vörunni sjálfri,“ segir Þorsteinn.

Margfaldur munur á kolefnisspori í stáli

Þorsteinn segir að þau stálþil sem GA Smíðajárn bjóði í dag séu með á bilinu 370-540 kg/ Co2 við framleiðslu en verðmunur er á framleiðsluaðferðinni. Kaupendur geti því reiknað kolefnisspor framkvæmda með þeirri framleiðslu sem þeir velja og kolefnisjafnað með kaupum á slíkum einingum. Til samanburðar þá segir hann að kolefnissporið þar sem ekki er notast við endurunnið efni og hreina orkugjafa sé allt uppí 3,2 tonn af Co2 í framleiðslu. Framleiðsluferlið sé vottað og einnig er upprunavottun á efninu og því eigi allt að vera skothelt.

„Veljum grænt í hafnargerð!“

Þorsteinn setur fram þá spurningu hvort tilfellið sé að hér á landi séu stálþil í höfnum sem séu með níu sinnum meira kolefnisspor en útboðsgögn hafi sagt til um. „Vottanir á því efni sem tilgreint er sem grænt þarf að skoða sérstaklega og uppruna þeirra. Því miður hefur borið á því að vottanir hafa verið falsað sem hafa komið með vörum og því er mikilvægt að verkkaupi kynni sér og sannreyni vottanir sem fylgja með vörum sem keyptar eru í þeirri trú að um umhverfisvæna vöru sé um að ræða. Sveitarfélög eru til að mynda að kaupa slíka vöru sem á að vera umvherfisvæn samkvæmt útboði. Í Evrópu eru ríkar kröfur um umhverfsmál og skráningu uppruna vöru. Við getum ekki alltaf lokað augunum þegar kemur að vottunum og gæðum til framkvæmda á Íslandi og horft bara til kostnaðar. Stundum er verðmunurinn ekki mikill í krónum en getur verið milljónir tonna af Co2 útblæstri í framleiðslu ef horft er bara til stálþila. Veljum grænt stál í hafnargerð,“ segir Þorsteinn.

Greinin birtist fyrst í Sóknarfæri.

Deila: